Fólk sem að fæddist fyrir 1990 ætti að vera dáið!!! (eða vorum við bara heppin??)
Já, samkvæmt löggjöfum og skriffinnum nútímans ættu þau okkar sem voru börn á 5., 6., 7. og 8. áratuga síðustu aldar ekki að hafa lifað af.
HVERS VEGNA VAR ÞESSI NIÐURSTAÐA OKKAR SVONA?
-Jú, barnarúmin okkar voru máluð með blýmálningu.
-Það var engin barnalæsing á lyfjaglösum, hurðum eða skápum og þegar við hjóluðum notaði ekkert okkar hjálm.
-Sem börn sátum við í bílum án öryggisbelta og/eða púða.
-Að fá far á vörubílspalli var sérlega gaman.
-Við borðuðum brauð með smjöri, drukkum gos með sykri, en fæst okkar lentu í offituvandamálum, því við vorum alltaf úti að leika
-Við deildum gjarnan gosflösku með öðrum og allir drukku úr sömu flöskunni án þess að nokkur létist.
-Við vörðum löngum stundum í að byggja kassabíl úr dóti og drasli og þutum á honum niður brekkuna, bara til að uppgötva að við höfðum gleymt bremsunum. Eftir nokkrar veltur lærðum við að leysa vandamálið.
-Við fórum að heiman snemma á morgnanna til að leika okkur allan daginn og komum aftur heim í kvöldmat Enginn hafði möguleika á því að ná í okkur yfir daginn.
-Engir farsímar. Ha, engir farsímar? Óhugsandi! Sumir áttu litlar talstöðvar sem var flott að eiga!
-Við áttum ekki Playstation, Nintento 64, X-box, enga tölvuleiki, ekki fjölmargar rásir í sjónvarpinu, ekki video, ekki gervihnattasjónvarp, ekki heimabíó, farsíma, heimilistölvu eða spjallrásir á Internetinu.
-Við eignuðumst vini! Við fórum bara út og fundum þá.
-Við duttum í skurði, skárum okkur, fótbrotnuðum, brutum tennur, en enginn var kærður fyrir þessi óhöpp. Þetta voru jú óhöpp. Það var ekki hægt að kenna neinum um? nema okkur sjálfum. Manstu eftir óhappi?
-Við slógumst, urðum blá og marin og lærðum að komast yfir það.
-Við lékum okkur í nýbyggingum, fundum upp leiki með naglaspýtum og drasli og átum Maðka og reyktum njóla. Þrátt fyrir aðvaranir voru það ekki mörg augu sem duttu út og ekki lifðu maðkarnir inni í okkur til eilífðar og margir gáfust upp á fyrsta njólanum!
-Við hjóluðum eða gengum hvert til annars, bönkuðum á dyrnar, gengum inn og létum eins og heima hjá okkur.
-Við lékum okkur úti eftir kvöldmat, fórum í fallin spýta, eina krónu, eltingaleik eða feluleik, svo ekki sé minnst á löggu og bófa. Svo þegar aldurinn sagði til sín fórum við í kossaleik og eignuðumst kærustu/kærasta.
-Það þurfti engar félagsmiðstöðvar eða neina til að stjórna okkur - Við stjórnuðum okkur sjálf.
-Sumir nemendur voru ekki eins glúrnir og aðrir, þeir lentu í tossabekk. Hræðilegt.... En þeir lifðu af.
-Engin vissi hvað Rítalín var og engin bruddi pillur sem barn.
-Við fórum í sunnudagsskóla eða sóttum KFUM og K, sungum og vorum í Skátunum og lærðum hnúta og kurteisi.
-Ef það sprakk á hjólinu lagfærðum við það í sameiningu og alveg sjálf.
-Morgunkornið okkar var m.a. TRIX morgunkorn, og við lifðum af litarefnið í því...
OG AFLEIÐINGIN ER ÞESSI!
Síðustu 50 ár hafa verið sprengja nýsköpunar og nýrra hugmynda. Við áttum frelsi, sigra ósigra og ábyrgð og við lærðum að takast á við það allt saman. Við sem ólumst upp áður en löggjafi og stjórnvöld settu lög og reglur um líf okkar sem þeir segja að sé 'okkur sjálfum fyrir bestu'?.Þessi kynslóð hefur alið af sér fólk sem er tilbúið að taka áhættu, góð að leysa vandamál og bestu fjárfestar nokkru sinni.
12. apríl 2009 klukkan 18:08
Elín Eiríksdóttir 1 athugasemd
Directions: 1. Put your iPod, iTunes, Windows Media Player, etc. on shuffle. 2. For each question, press the next button to get your answer. 3. YOU MUST WRITE THAT SONG NAME DOWN NO MATTER HOW SILLY IT SOUNDS
1. IF SOMEONE SAYS "IS THIS OKAY" YOU SAY? Tímarnir Okkar
2. HOW WOULD YOU DESCRIBE YOURSELF? Kissing A Fool - Vona að það sé ekki satt :)
3. WHAT DO YOU LOOK FOR IN A GUY/GIRL? Remember Me
4. HOW DO YOU FEEL TODAY? Kveðja Útlagans
5. WHAT IS YOUR LIFE PURPOSE? Tears On My Heart - Voða er það eitthvað sad
6. WHAT IS YOUR MOTTO? Disco
7. WHAT DO YOUR FRIENDS THINK OF YOU? Snjókorn Falla
8. WHAT DO YOUR PARENTS THINK OF YOU? My Number One - heheheheeh
9. WHAT DO YOU THINK ABOUT A LOT? Do You Remember
11. WHAT DO YOU THINK OF YOUR BEST FRIEND? Lang Langt Út Í Heim - Gæti ekki passað betur :)
12. WHAT DO YOU THINK OF THE PERSON YOU LIKE? Wild Child
13. WHAT IS YOUR LIFE STORY? Ain´t No Sunshine - Voða á ég eitthvað sad líf :( nema það sé verið að tala um veðrið, fæ rosa oft vont veður :)
14. WHAT DO YOU WANT TO DO WHEN YOU GROW UP? The Longships
15. WHAT DO YOU THINK WHEN YOU SEE THE PERSON YOU LIKE? Cemeteries Of London - rosa rómantískt !!!
16. WHAT WILL YOU DANCE TO AT YOUR WEDDING? Gleði og Friðarjól - spurning hvort ég gifti mig um jól :)
17. WHAT IS YOUR HOBBY/INTEREST Coat Of Many Colours
18. WHAT IS YOUR BIGGEST FEAR? A Whiter Shade Of Pale
19. WHAT IS YOUR BIGGEST SECRET? Do Not Weep
20. WHAT DO YOU THINK OF YOUR FRIENDS? Rain
21. SONG THEY WILL PLAY AT YOUR FUNERAL? When I Wake Up - hope not :)
22. WHAT WILL YOU POST THIS AS? Polyesterday
Kv Elín
11. janúar 2009 klukkan 17:19
Elín Eiríksdóttir 1 athugasemd
Gleðilegt nýtt ár allir saman :) (Takk fyrir jólakveðjuna Anna Sigga)
Í dag er komð ár síðan ég skellti mér aftur út á single markaðinn.... Trúi ekki að það sé komið ár! Mér finnst vera mikið styttra síðan en samt svo mikið búið að gerast síðan.
Smá af því sem hefur gerst síðan 7.jan í fyrra:
*Ásta kom heim í tæpa viku sem var vel notuð :) *Marta átti afmæli *Ég og Marta fórum út til Ástu *Marta og Elli fengu sér smá pásu ;) *Ég átti afmæli *Ásta átti afmæli *Ég fór út til Ástu *Ásta kom með mér heim :) *Við fórum í stelpuferð í bústað *Ég og Marta fórum í heimsókn að hitta Ástu á Ólafsvík *Ásta fór aftur heim :( *Ég og Marta fórum á Grundafjarðardagana *Ég, Marta og Guðný fórum til Tenerife *Guðný átti afmæli *Rabbi átti afmæli.......brjálað partý :) *Ég fór út til Ástu
Stefnan er tekin á að hafa jafn gaman af þessu ári :)
Það helsta sem er í gangi núna er eitthvað skrattans exem sem ég er með, eða það heldur læknirinn allavega! Ég kom semsagt út úr apóteki í dag með risa poka. Er að fara að taka steratöflur og bera á mig eitthvað krem. En þar stoppar það ekki! Ég er að fara í ljósa- og baðmeðferð og ekki svo heppin að fara í ljósabekk hjá Sælunni og skella mér svo í bað heima :) heldur þarf ég að fara á húðdeild Landspítalans í slopp og eitthvað svoleiðis vesen. Vona að þetta lækni mig þar sem þetta er búið að vera að hrjá mér í 3 mánuði núna og komin með frekar mikið nóg af þessu.
En ég er alveg hreint endurnærð eftir ferðina til hennar Ástu sem gekk aðallega út á það að sofa, borða og drekka með einstaka spili inn á milli. Vorum 6 saman á aðfangadag og gamlársdag og borðuðum kræsingar :) Ásta og Guðni buðu félaga Guðna að vera með okkur og við skemmtum okkur fram á nótt. Hina dagana fórum við í heimsóknir inn i Ålgard eða vorum bara heima í kósýheitum. Svo geri ég ráð fyrir að næsta Noregsferð fari í skipulag von bráðar. Ég get ekki verið allt of lengi frá henni Ástu minni :) Tíminn flýgur áfram þannig að ég sé hana áður en ég veit af :) Reyni nú að plana ferð með henni Mörtu minni vonandi svo við getum verið allar saman.
Á föstudaginn næsta ætlum ég, Marta og Arna að gera okkur glatt kvöld og hafa okkar eigin áramóta, jóla og afmælisfögnuð. Við ætlum að elda eitthvað rosa gott og fá okkur aðeins í tánna :) Langt síðan ég hef gert eitthvað með stelpunum mínum þannig að það er kominn tími á að lyfta sér aðeins upp.
Annars er mest lítið að frétta af mér. Enn að vinna hjá Eimskip, aðeins minna að gera en vanalega sökum einhverrar kreppu sem er í gangi. En ég er með vinnu og er þakklát fyrir það. Stefni á að skila loksins inn nuddtímunum mínum og útskrifast í vor. Búin að trassa þetta allt of lengi. Og hver veit nema ég komi mér að heiman ef efnahagurinn leyfir það :) Búin að koma mér allt of vel fyrir í foreldrahúsum :) Kominn tími til að standa á mínum eigin....aftur :)
Læt þetta duga fyrir ykkur í bili og bið að heilsa ykkur öllum.
Kv Elín
07. janúar 2009 klukkan 18:01
Elín Eiríksdóttir 3 athugasemdir
Jæja gott fólk, núna eru nokkrir klukkutímar í að ég fari af stað til Noregs til að halda upp á jól og áramót með Ástu og fjölskyldu hennar. Ég ætla að hafa það rosalega kósý úti og endurnæra sál og líkama :)
Óska ykkur öllum gleðilegra jóla og áramóta með von um að 2009 verði alveg hreint yndislegt ár.
Jólakveðja, Elín
21. desember 2008 klukkan 22:31
Elín Eiríksdóttir 2 athugasemdir
Jæja þá er ég búin að festa kaup á miðanum frá Osló til Stavanger :) Búin að kaupa allar jólagjafir nema eina og langt komin með að skrifa jólakortin :) Ég held bara að jólin megi bara fara að koma. Ég ætla að vera í 2 vikur úti hjá henni Ástu minni og fjölskyldunni hennar. Held það verði skrítið að vera ekki með neinum úr fjölskyldunni minni en allt í lagi að prófa þetta einu sinni. Þetta ár er búið að vera nógu mikið öðruvísi þannig að það er ágætt að klára það þannig. Kem heim 4.janúar, sama dag og ég kom frá Flórída eftir síðustu jól. Spurning hvernig næsta ár verði hjá mér. Gaman að sjá hvort þessi kreppa komi manni út frá m&p og í eigin íbúð.... við Birna erum nú svo góðir herbergisfélagar þannig að ég hef ekki neitt út á það að setja að vera heima, en spurning hvort maður þurfi ekki að fara að finna sjálstæðið sitt aftur :)
Ætla að fara í hlýrri föt núna og koma mér í ísbíltúr.
Kv Elín
30. nóvember 2008 klukkan 19:43
Elín Eiríksdóttir 1 athugasemd
Jæja er ekki kominn tími á að skifa eitthvað fréttnæmt hér???
Ég ætla að byrja á því að óska honum Róberti til hamingju með afmælið sitt í dag :)
Það er nú að verða kominn mánuður síðan ég kom heim frá Tenerife, tekur smá tíma að koma með ferðasöguna:) Ferðin var æðisleg í alla staði og við skemmtum okkur konunglega í alla staði eins og vinir mínir á facebook geta séð á myndunum. Við fengum rosalega gott veður allan tímann. 35-40° á daginn og 20-25° á kvöldin, algjör sæla. Við eyddum dágóðum tíma í að sóla okkur við sundlaugabakkann með kalda drykki við höndina. Við versluðum alveg ágætlega, fórum einn dag til Santa Cruz í verslunarleiðangur og vorum svo duglegar að skoða í búðunum hjá okkur. Fréttum svo að þeir úti eru frekar strangir á yfirvigtina en vorum svo heppnar að hitta á fjóra stráka sem voru ekki með mikinn farangur og við fengum að tékka okkur inn með þeim og losnuðum þannig við að eyða meiri peningum, sem var gott mál þar sem kortin ansi mikið notuð eftir góða ferð :) Við fórum mikið út að borða og reyndum að fara á alla staðina sem var búið að mæla með. Enduðum samt á því að ofnota Bianco....enda ekki annað hægt miðað við matinn sem þeir bera fram. Í endann á ferðinni fengum við gefins Bianco boli....ekkert smá góðir viðskiptavinir :):):) Við fundum okkur líka uppahalds kokteil bar. Ef einhver er á leiðinni til Tenerife þá verðið þið að finna þennann bar. B.U.D.A Cokteil Bar. Þar eru þeir allra bestu kokteilar sem hægt er að smakka. Og vegna hita þá pöntuðum við okkur alla kokteilana "frozen"....ummmmmmmm, ég held barasta að ég finni enn bragðið af þeim :) Held ég tali fyrir hönd okkar allra þegar ég segi að við værum alveg til í að vera þarna ennþá og held að við eigum eftir að kýkja þarna aftur. Við fórum einn dag á ströndina, engin okkar er voða mikil sand manneskja þannig að það var fínt að fara bara einu sinni. Fórum á hjólabát og sóluðum okkur úti á sjó. Stukkum ofaní og jafn fljótt upp úr aftur svo hákarlarnir næðu ekki í okkur :) Fórum svo líka í sundlaugagarð, Siam Park. Hann opnaði tveim vikum áður en við komum og var æðislegur. Marta hetja kom með okkur í öll tækin og ég er rosa stollt af henni :) Þá á hún bara eftir að fara með mér í rússíbana og þá fær hún kvittun um það að hún sé mesta hetjan sem ég þekki.
Ég held að þetta sé það helsta sem hægt er að segja frá þessari ferð og þá get ég snúið mér að því að segja frá næstu ferð :) Ég og Marta erum semsagt búnar að kaupa okkur miða til Noregs um jólin :):):) Ætlum að eyða jólunum með Ástu þessi jólin, og áramótunum líka. Best að gera allt sem manni langar til að gera á meðan maður er svona einn og engin ábyrgð á herðum manns. Held svo að ég fari að róa mig í þessum flugferðum út um allt þegar við komum heim á nýju ári....nema náttúrulega þegar Ásta fæðir þriðja soninn sinn þá verður maður nú að vera á svæðinu.
Annars er lífið nú bara búið að ganga sinn vanagang frá því við komum heim. Vinna sofa og reyna að finna eitthvað skemmtilegt þar á milli. Síðustu helgi hélt Guðný upp á afmælið sitt á Prikinu. Við eyddum deginum í undirbúning svo allt yrði fullkomið (sem sagt við ) og ég held bara að það hafi heppnast mjög vel :) Eyddum kvöldinu í góðra vina hóp og fórum ánægðar heim.
Held ég sé búin að skrifa nóg til að bæta upp fyrir síðustu vikur (vonandi)...
Kveð ykkur í bili og vonandi fæ ég skrif æði fyrr en seinna.
Kv Elín
06. nóvember 2008 klukkan 18:17
Elín Eiríksdóttir 5 athugasemdir
Naut: Það er ekki tímafrekt að hafa allt sitt á hreinu, og gerir allt mun auðveldara viðfangs. Yfirfærðu þetta á vinnuna. Þeir sem þú skiptir við meina vel, en fáðu allt skriflegt.
21. október 2008 klukkan 08:19
Elín Eiríksdóttir 2 athugasemdir